Hæ þú:D

06.02.2008 23:38:38 / elva89

mjá

Hæ þið öll sem hafið rosa gaman að því að vera inná ´þessari síðu, en þá er ég buin stofna nýja og ENN meiri spennandi síðu, 123.is síðu, loksins loksins buin að langaí svoleiðis LENGI

en allvegana.. þa´er þessi bara farin og kveðjum hana í kór.

nyja fína síðan min er svona http://www.123.is/elvapelva/

 Takk takk


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 00:32:10 / elva89

Haldið þið ekki að maður sé farinn að slúðra

Jæja þá er þessi helgi liðin og ekki var hun neitt spes nema fékk að hitta helga smá..

hann vinnur nottla aðalega á nóttunni og sefur á daginn og um helgina var ég á kveldvakt og hann sofandi eiglega þangað til að ég fór að vinna þannig maðir hitti han eigiegla bara á kveldin.. oohhh þoli ekki að vinna þessar helgar alltaf..

en allavegnaa.. nuna tekur bara ný vika við, er í fríi á morgun og vinna morgunvakt til föst og svo helgafríi jeij! Er ekkert voðalga spennt fyirrþví, eina helgafríið í þessum mánuði og ekkert að gera og helgi útá sjó.. pff

Núna sit ég bara inní herbergi að éta snakk og úti að hlaupa í hausnum minum.. já ægilega notó bara;) En er þessi kuldi ekkert grín eða? Ég nennti ekki á bílnum í vinnunna því ég nenti ekki að skafa af honum, mér þykir það alveg merkielga leiðinlegt.. en ókei þannig´eg rölta bara, eitthvað sem ég nenni aldrei ;P en okei ég hélt ég yrði bara að klaka á leiðinni.. já sæll það er kalt sko!!

jájá kvarta eg bara og kveina hehe.. skemmtilegt blog;) æji ég veit aldrei neitt skemmtilegt til að blogga um;P ekkert spennandi að gerast í mínu lífi nuna.. bara vinna og uu gera ekk neitt.. jább, er samt að pæla að byrja aftur í aðhaldsnámskeiðinu til að hafa eitthvað að gera og þá neyðist ég til þess að hreyfa mig allavegana tvo daga í viku, mér man likahvað mér leiið miklu betur þegar ég var á þessu námskeiði.. svoo þegar það var búið keypti ég mér kort í ræktina, ægilega ánægð með mig og ætlaði sko að halda áfram, en það entist nu ekki lengi hehe:P bara komin í sama farið aftur.. arg það er svo erfitt að borða holt!!!!! Ef einhver kann að verða mjór á einu degi þá má hann heimsækja mig takk!


SLÚÐUR!!!!!!!

Fyrir ykkur sem vita ekki þá á Svava mín loksins kærasta og hann er grænlenskur fyrir þá sem vita það ekki heldur.. og þau eru buin að plana að gifta sig á grænlandi fyrir þá sem vita það ekki heldur....
Giftingin verður á Grænlandi í snjóhúsi og aðeins mörgæsir og ég eru boðin.. já leiðinlegt fyrir ykkur!!

Svo er hún bogga mín ennþa úti á Kanada og gengur vel hjá henni, en hún er víst bara buin að sjá einn myndarlegan strák þarna.. skil þá ekki hvað heldur henni að vera þarna.. ætli það séu þá ekki bara svaka túttur þarna;) En hún var allvegan buin að lofa  mér því að sofa hjá svertingja þarna.. haa var þaggi bogga;)

Táin á hliðiná stóru tánni hjá mér er STÆRRI en stóra táin 8| jájá var bara að uppgvuta í vinnunni um daginn að hun væri svona miklu stærri!

Bensó lifir enn! Skil ekki afhverju enginn sé buinn að kveikja í þessari stöð. það er svo auðvelt, bara kveikja sér í sígó, taka bensin dæluna og sulla yfir stöðina og bara kasta stubbinum yfir og þá bara BAMM BÚMM!!! Haldið þið að það væri ekki fyndið hihi.. nei samt ekki, þá myndi ég missa vinnuna mina:O

Steini er á lausu

Ég keypti mér glas um daginn sem kostaði 74kr og það er mynd af svíni á því.

 

JÆJA NENNI EKKI SLÚÐRA MEIRA.. er bara að spriiiinga veit svo mikið slúður.. hafið þetta !

Bleble:)

Svona er snjóhúsið sem svava og grænki ætla að gifta sig í


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 00:00:32 / elva89

mjá já

Hvar kynntumst við?


Hvað er miðnafnið mitt?


Hversu lengi hefurðu þekkt mig?


Hversu vel þekkiru mig?


Trúi ég á Guð?


Hvað hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig?


Aldur minn?


Afmælisdagur?


Háralitur?


Augnlitur?


Á ég systkyni?


Hefuru nokkru sinni öfundað mig?


Hvað finnst mér skemmtilegast að gera?


Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig?


Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á?


Hver er minn besti eiginleiki?


Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn? Er ég fyndin/nn?


Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum?


Hef ég einhveja sérstaka hæfileika?


Spila ég á eitthvað hljóðfæri?


Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað mundi það þá vera?


(Ef þú ert af hinu kyninu) Höfum við kysst?


 Hvað heldurðu að verði um mig framtíðinni?


Heldurðu að ég eigi eftir að giftast?


Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast?


Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman?


Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni?


Ef þú gætir gert eða sagt eitthvað sérstakt við mig núna, hvað mundi það vera?

 

Jæja svava min núna getur þú svarað mér:D

En ég fann eina mynd sem á eða átti rosalega vel við hana svövu mína haha ég hló og hló þegar ég sá þessa mynd og sá bara svövu greyið fyrir mér.. verð að syna ykkur..

Funny14 - Copy

Svava pæja;)

 

En annars er voðalítið að frétta, skrapp í bæinn í dag bara fram og til baka með Rebekka, kom eigilega bara tómhendi heim.. hm skritið=P ætlaði svo sem ekkert að versla eitthvað ákveðið...

æji nenni ekki að skrifa neitt, meigið endilega svara þessum spurningum ef þið nennið því:P


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 01:29:33 / elva89

hlakka svo til:D

MYNDIRNAR FRÁ ÁRAMÓTUNUM KOMNAR

 

æja hérna sit í ég uppí rúmi og get ekki sofnað því ég veit´að helgi er að koma heim í fyrramálið=) rétt náði að redda mér fríi svo ég myndi nu ekki hitta hann rétt í 2 tima eða eitthað því þeir fara svo aftur út á morgun:( svo næst þegar hann kemur heim í helgarfrí þá er ég að vinna og lika þar næst.. alveg týpist og alveg glatað.. en kannski er hægt að redda þessu einhvernvegin.. vona það=)

Daginn fyrir áramót var ball, við kíktum til rut ég og bogga og við drukkum okkur til þar og fórum svo áballið og það var bara mjög gaman, og alveg stút fullt hús, sátum mest bara uppi að spjalla en dönsuðum of kors lika fyrst.. en þetta var bara mjög skemmtilegt ball=)

Svo eru bara áramótin buin og seinasti dagur jóla var fyrir svona klukkutima og korter=P áramótin voru mjög góð.. við borðuum öll heima hjá steinu og sæja og gerðum allt þetta venjulega svo fórum við bogga heim að sækja eitthvað og kíktum svo til rut og vorum þar að reyna aðkomast í singstar en rut á ekki fjarsterýngu þannig við fengum lánaða hjá snæbjörtu en virkaði ekki hjá rut hahaha þetta var fyndið=p svo um 3 minnir mig kíktum við í party til sólbjartar og þar var singstarið á fullu þannig við koumst í singstar:D svo um hálf 5 kom helgi minn að sækja okkur boggu.. ahh næs að þurfa ekki að labba heim í þessu ógeðslega veðri!!

 Já þarna djammaði ég 2 í röð!! eitthvað sem ég hef held ég aldrei meikað sko.. en ég var buin að taka mig svo langt frí frá djammi að þetta var bara helvíti skemmtilegt, þótt ég hafi verið með hausverk öll áramótin en lét mig bara hafa það :D

það er virkilega erfitt að hætta að sukka svona mikið eftir jólin.. ég bara ekki að geta það sko.. enda get eg valla hreyft mig fyirr spiki og er alltaf södd haha.. þetta fer að koma..  ;)

Svo er Bogga bara stungin af til Kanda.. eins og það sé ekki nóu kalt hérna á íslandi þá er öruglega helmingi kaldara þarna hjá henni, enda er hun að frjósa úr kulda greyfið, talaði smá við hana á skype áðan.. soldið kúl að tala svona hehe :P en henni líður vel enn sem komið er og það er það sem skiptir máli:) ´Vona bara að allt eigi eftir að ganga eins og í sögu hjá henni og ´timinn eigi eftir að líða hratt og hun komi fljótt heim.. =)

fór í bæinn á fimtudaginn með boggu og mömmu og hrönn fékk far þanngi verð að telja hana með lika;) við mamma og bogga og hjörvar fengum okku að borða í kringlunni og vorum smá í búðum, eða reyndar ÞAU að elta mig frekar hehe.. bróðir minn greyið alveg að gefast upp þannig hann fékk aðfar til systir minnar að horfa á tv og hun kom bara með okkur;) svo fórum við bogga og mamma heim til mömmu og það var svaka stuð hjá okur, mamma að spá fyir okkur og svona;) eg náði að versla mér eitthvað, allavegan stígvélin sem ég hafði séð áður og mátað en týmdi ekki að kaupa, en þarna voru þau buin að lækka og ég átti gjafabréf:D svo loksins keypti ég mér ekra gullkeðju svo ég gæti notað hálsmenið mitt sem helgi gaf mér í afmælisgjöf=) svo verslaði ég eitthva smátterí, peningaveski, eyrnalokka og trefil og pendúl.

Svo fer ég aftur í bæinn á miðvikudaginn með Rebekku, hun vinnur fyrir mig á morgun svo ég geti komið með henni á miðvikudaginn því hun ætlði á morgun en nennti ekki ein þannig við breyttum þessu bara svona;)

Jæja wów þetta er langt blogg finnst mér... ætla þá að hætta svo einhver nennir að lesa þetta:Þ Bleble..=)

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.12.2007 20:50:59 / elva89

jólin búin og Áramótin að skella á

Jæææja.. Þetta voru yndilsleg jól í alla staði.. eins og ég hef sagt hér áður þá var ég hérna heima í Lágholtinu um jólin og það var voðalega rólegt og kósý... borðuðum humarsúpu í forrett og svo hreindyr og hamborgarhrygg og svo ís í eftir rétt.. svo opnað pakkana og lesið jólakortin og svona.. allt í róliheitunum sem mér fannst ægilega kosy =)

Við Helgi fengum alveg helling í jólagjöf, t.d safapressu, matarstell (fengum lika í fyrra þannig eigum 2;) bók, kerti, sokka, trefil, úr, helling af náttfötum, vetlinga, glös, spil, bodylouson og showergel, hvernig sem þetta er skrifað og eitthvað fl sem ég man ekki í augnablikinu svo gaf ég honum 66°norður flíspeysu, bol, mynd og rakvél og hann gaf mér aðra seríuna af desperate housewives og geggjað flotta myndavél.. rosalega ánægð með gjafirnar =)

Svo á jóladag var matarboð hér í hádeginu og svo skelltum við helgi okkur til ólafsvikur að hitta fjölskylduna mina, fyrst fórum við í heimsókn til pabba og svo í mat til systirminnar þar sem mamma og anna heiða og hjörvar voru lika, og það var geggjað að hitta þau, langt síðan við höfum öll verið svona saman!

Svo eru bara áramótin eftir og þá verður sko djammað og djúsað. ég er buin að henda helga í ríkið fyirr mig svo ég er buin að tryggja mér djúsið! ;) Við stelpurnar erum að fara að kveðja Boggu, þar sem hun er að fara út eftir áramót í 4 mánuði.. harka í henni;)

Hitti hana ósk nuna áðn, við tókum smá rúnt og hun missti sig í myndavélinni ;) Hún á bara 3 mánuði eftir, get ekki beðið eftir að litla skrímslið hennar kemur ;) hihihihihih

Ég setti nýjar myndir inná hérna í valmynd sem ég er buin að taka úr nýju fínu myndavélinni minni, ég er sko algjör pæja með þessa myndavél;) Endilega skoðið, þessar myndir eru bara héðan og þanan kringum jólin :Þ

Jæja... hafið það gott sem eftir er af árinu=)

Kveðja Elva Rún.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 21:34:52 / elva89

jól

Jæja þá er allt reddy fyrir jólin, nema ein gjöfin hans helga sem mamma redda mér og keypti það fyrir mig og ég fæ það á morgun og get pakkað því inn og skellt því undir jólatréið, annars er ég buin að pakka öllum inn og senda út jólakortin og tek rúnt á morgun og fer með þau sem fara hér um bæ =)

Á morgun á systir mín tíma í klippingu hér í fyrramálið kl 9 já einmitt..... og mamma og hjörvar fara með henni til að heimsækja mig og láta mig fá jólapakkana mina og ég læt þau fá þeirra=) Hlakka svoo til að hitta þau, ótrúlega erfitt að vera ekki með þeim um jólin=P en vonandi þá bara næs..

Það var ball á fiskunum í gærkveldi.. við Bogga og Rebekka ætluðum að kíkja aðeins á það, fórum út um 1 og fórum aðeins til Rut og svo á rúntinn og Rebekka fór svo út og við Bogga bara góðar á rúntinum með lög í botni að syngja :P Svo kíktum við aðeins á Ballið um hálf 3 og vá þvílik stemming þarna, dauð sé nú bara eftir því að hafa ekki bara dottið í það og mætt á ball!!!! en það kemur nu ball eftir þetta vonandi aftur;)

Svo í dag hitti ég hana ósk bumbu.. hun er loksins komin heim kjéllingin, alltaf bara í reykjavík.. ississ;) við rúntuðum í góðan tíma, rosa gaman að hitta hana =) síðan skellti maður sér bara á rúntinn með Svövu og Boggu og við fórum út að borða og karítas með okkur, voðalega næs;)

en jæja nenni ekki að skrifa meira, vona að það takist hjá þér að commenta nuna svava min;) hehe

 

GLEÐILEG JÓL ALLIR =)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 17:40:43 / elva89

jól og aftur jól

dísús ég var ekki buin að gera mér grein hvað það er bilaðslega stutt í jólin, var að spjalla við múttu í gær og var að spurja hana hvenar hun fer vestur því hun verður þar um jólin og hun var ekki viss, einhverntíman í næstu viku og ég bara vóó svona snemma.... svo leit ég á dagatalið EIN OG HÁLF VIKA Í JÓLIN:O en samt gaman =D

Var i bænum í gær, við svava forum i fyrradagum kveldið og svo kláraði ég allar jólagjafirnar, voðalega ánægð með það, 3 tilraun til að klára þær og loksins tókst það :P  en ég er samt jólagjafa sjúk þetta árið.. ég get valla stoppað að kaupa meira, fór einmitt í apótekið áðan að versla aðeins meira fyrir systir mina og kærastann hennar, þótt ég sé buin að kaupa jólagjöfina þeirra:P svo bætti ég lika við hgjöfinni handa mömmu, hun fær alveg hjúts frá mér :P en e´g er stopp nuna, ætla mér ekki að versla meira.. hehe

Svo þarf maður bara finna sér einhvern góðan tíma til að pakka inn gjöfunum, ætlaði að gera það í dag en tími því ekki því mér finnstþ að svo agalega gaman.. langar að bíða með það svo ég geti skoðað gjafirnar lengur hhe ;)

Helgi sætilíus er heima, útaf brjálaðaveðrinu, átti að fara út í kveld en því er frestað þangað til á morgun, ég auðvitað yfir mig ánægð með það;)

Helgi pantaði fyrir mig allar seríurnar af Gilmore Girls og það kom í hús í fyrradag, já það er sko hamingja hjá mér þá, elskaþ essa þætti ég á þá alla takk núna :D

 

haha þetta er svo fyndið, varð að deila þessu með ykkur :P

en jæja hef þetta blogg ekki lengra, hef ekkert meira að segja ykkur.. eigið góðan dag í þessu frábæra veðri!! ;)

Væri ekki leiðinlegt að fá þennan jólasvein til sín;)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 14:41:08 / elva89

=)

Jæja styttist óðum í jólin:D

Fór á frostrósirnar á miðvikudaginn og þær voru GEGGJAÐAR!! Um leið og þær byrjuðu að syngja fékk ég gæsahúð útum allt og var eigilega með hana allan tíman, þetta var svo flott=) Væri alveg til í að fara aftur :D

Við fórum á jólahlaðborð á Laugardaginn og það var alveg ágætt, Fengum allskonar mat sem ég borða ekki hehe, svo var eftirétturinn geggjað góður. Við Helgi fórum bara heim eftir matinn, hann var kominn með hausverk og ég að leka úr þreytu, við kúrðum okkur bara uppí sófa að borða snakk, voðalega notó bara, ætlaði í innflutningsparty en var bara því miður ekki að nenna að fara á djammið, eins og yfirleitt alltaf, er orðinn svo mikill félagskítur hihi, það er lika svo leiðinlegt að djamma í þessum kulda, þurfa kannski að labba heim og reykja úti og svona.. uuhh þoli það ekki, þá er bara betra vera heima að kúra og éta nammi hehe ;)

Við Svava erum að fara í bæinn á fimtudaginn yfir eina nótt, klára jólagjafirnar og allt sem tengist því=) Hlakka svo til, alltaf jafn gaman að fara í bæinn. Ég á nú samt ekki mikið eftir í jólapökkunum. Svo langar mér finna mér einhvern sætan bol eða kjól, fyrir jólin svo nottla fyrir útskriftina hennar Boggu, hún er svo dugleg =)

Svo er maður auðvitað búinn að setja upp jólaseríur í gluggann sinn, svo sætt=) Og lika eina jólastyttu og jólakertastjaka. Allt að smella hérna. Helgi kemur svo heim í jólafrí kringum 18 des sennilega, mmm það verður svo gott því hann verður heima alveg fram í januar=D

Er búin að setja nokkrar nýjar myndir ( þó þær eru ekki alveg glænýjar) og svo bumbu myndir af Helenu og Ósk :D

Jæja.. hef ekkert meira að bulla hérna, bið bara að heilsa ykkur :P


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2007 22:37:50 / elva89

júle

soldið búin að missa blogg æðið... enda fær maður engin comment það er svo leiðinlegt :P en allavegana...

Helgi var lengi heim um daginn og það var æðislegt.. við erum búin að fara á Ladda sýninguna sem var rosalega góð og fyndin. Búin að kaupa allar jólagjafirnar nema handa okkur ;) og ég á eftir að klára Rebekku og Önnu Heiðu.. þannig ekkert stress í des:P mjög næs bara..

Við Rebekka erum að fara á Frostrósirnar á miðvikudaginn verður öruglega geggjað gaman:D Svo er jólahlaðborð hjá okkur í vinnunni á laugarinn. Mér hlakkar svo til jólanna:D Keypti 100 íslensku jólalögin og er búin að nauðga þeim :Þ híhí..

En já get ekki beðið eftir jólunum:D Og lika fyrstu jólin min og helgi jíbbí... þar sem ég stakk af í fyrra:klikk: hihihi.. en það verðu kosy =) svo verða áramótin öruglega geggjuð=)

ég veit EKEKRT hvað ég á að gera eftir áramót.. ég er bara lost.. sko annahvort taka fullan skóla og hætta vinna nema taka bara nokkrar vaktir, eða hætta í skólanum eftir áramót til næsta vetur og vinna bara eða fara til mömmu þangað til að helgi er buinn á sjónum.. ja´þetta er stórt og mikið spurningamerki.. held samt að ég fari ekki til mömmu því þetta er svo stuttur tíma.. en með skólann eða ekki skólann???? aaarg veit ekkert hvað ég á að gera :S mjög pirrandi..

 Helduru að maður sé ekki bara búinn að splæsa í mánaðkort í ræktina.. jújú.. þar sem námskeiði er búið þá verður maður að halda áfram.. reyna að grennast sem er alveg hrillilega erfitt fyrir mig ;P

en jæja nenniggi að skrifa meira=P 

bið að heilsa... jóljól:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.11.2007 22:15:56 / elva89

mjámjá

Þá er vikan og helgin búin

á Þriðjudaginn var ég í fríi og miðvikudaginn þannig ég ákvað að skella mér til ólafsvikur til systir minnar og gista hjá henni, þar sem er ekki neitt að gera hér.. en það var mjög gaman, við elduðum okkur kjútling og og fórum út að labba með foxy hundinn hennar og svo fékk foxy að lúlla uppí hjá mér um nóttin og hun tók allt plássið og alla sængina!! En það var allt í lagi hun var svo mikið krútt og henni leið svo vel.. =)

Svo á fimt kom helgi heim=) ég var að vinna sem var ekki gaman og svo vorum við bara á tjillinu voða kosy og fórum svo í bæinn laugardagskveldið og versluðum aðeins og svo um kveldið fórum við út að með allri áhöfninni og konum og það var rosa gaman og fórum svo á Ladda sem var algjör SNILLD, og svo brunuðum við bara heim=)

Núna er hann farinn og það er alltaf jafn leiðinlegt kveldin sem hann fer=/ en þar næsta mið kemur hann heim og fer ekki út fyrr en á mán eða þrið... og þá segji ég nu bara JEEEEEEEIJ!!! :D

I miss my múttu mjög mikið.... langar svo oft bara láta mig hverfa héðan og fara til mömmu og hjörvars =) og koma heim um helgar þegar helgi er heima :P en neiii það er nu ekkert hægt... ekki hægt allt sem maður vill;)

 

Mér hlakkar svo til jólanna =) vei vei vei.. eins og öllum held´eg, það eru allir að tala um það, enda er svo yndislegt þegar jólin eru=)

Jæja..´ætla fara að horfa á myndirnar sem ég var að leigja mér, ég lifi á þessari vidjoleigu og liggja uppí rúmmi að horfa á vidjo.. svoo kosy bara:P bleble


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 18:41:58 / elva89

jól jól

jæja þá er maður smá undirbúinn fyrir jólanna, er buin að kaupa 4 jólagjafir og þá 5 eftir held ég.. Fór í bæinn á föstudaginn og hitti Önnu Heiðu Systir mína og við löbbuðum í allar búðir að versla smá, ég fann mér kápu, geggjað sæta kápu=) og verslaði smá meira plús jólagjafirnar og afmælisgjöf handa litla brósa..

 

Það er viðbjóðslega kalt úti8|  ég var sko í úlpunni minni hálfan vinnudaginn í dag, því hurðin er eitthvað biluð í vinnunni og er bara opin og opnast alltaf meira með vindinum þannig allur kaldi vindurinn blééés inn.. oj það var svo kalt!

Núna er ég komin í 2 daga frí og þarf einhvernvegin að láta þá líða geggjað hratt því svo er helgi kominn heim:haha:  hlakka svo til =)

Æji það er svo notó að vera bara hérna heima á kveldin.. er orðin algjör heimalingur núna.. bara með kveikt á ilmkerum og það ilmar allt herbergið.. mmmmm =)

Svo er Bogga að fara útskritast um jólin, hún er svo dugleg stelpan! Þarf að finna einhverja flotta gjöf handa henni, veit eigilega ekki hvað maður gefur í svona útskriftargjöf... finn það út bara =P

 

jæja, hef eigilega ekkert meira að segja en þetta, langaði bara blogga=P bið þá bara að heilsa ykkur,, bleble 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.10.2007 22:58:07 / elva89

..

jææja.. fékk bara einhverja þörf fyrir að blogga þótt ég hef voða lítið að segja:P

Helgin var mjög fín, Helgi var heima og ég í fríi=) við gerðum mest lítið en að tjilla bara heima og horfa á myndir, fengum okkur bjór, fórum smá á narfann bara í róliheitum ég að sötra kakó og hann bjór =P

Svo næst þegar hann kemur þá förum við á Laddi, ví það verður öruglega mjög gaman, erum einmitt með íbúð yfir eina nótt og svona=)

 Ég var að hugsa að fara í bæinn næsta föstudag og finna mér kápu og kaupa kannski einhverjar jólagjafir og afmælisgjöf handa hjörvari. En það er víst hálka og brjálæði uppá vatnaleið og í bænum:S iiiiij veit ekki hvort ég þori ein:S Þar sem ég hef aldrei keyrt í mikill hálku:S ekki svo mig minnir allavegana... ætla hitta systir mína í bænum og svona.. langt síiðan maður hefur hitt Önnu Heiðu almennilega..

dúddúrurudúúúú.... ég er að springja gjörsamlega mér hlakkar svo til jólanna :haha: Fara að skreyta, skrifa jólakort, skreyta í vinnunni, dansa og syngja með jólalög, pakka inn gjöfunum, borða góðan jólamat og vera með helga um jólin:D Hann fer sennilega í gott jólafrí, ohh það verður æðislegt að fá hann heim í smá tíma, ekki bara rétt yfir helgi alltaf..

jájájá... veit ekki hvort ég hafi eitthvað mikið meira að segja..

Þanig bara segja ég bless...

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 17:42:40 / elva89

..

Hóhó jólin eru að koooommaaa bráðum:D víí get ekki beðið, við svava fórum í blómabúðina áðan og það er aðeins byrjað að skreita.. það er nu byrjað að skreita helling í bænum... fór í rúmfatarlagerinn um daginn og það var nu eigilega bara jóladót til sölu.. ;)

 Núna er bara helvítis rigning eins og er búið að vera í 2 mánuði eða meira! nema um daginn þá snjóaði aðeins, ég var einmitt að fara á morgunvakt og um morguninn þegar ég var að fara út þá hugsaði ég " æji ég vildi að það væri kominn snjór" og þegar ég opnaði hurðina þá var bara akkúrat snjókoma, jéminn hvað ég var glöð!! =)

 Ég er byrjuð í aðhaldsnámskeiðinu og það er bara mjög gaman, þarf reyndar að skrifa allt niður sem ég borða, og ég er nu ekki beint í hollustunni:S en ætla breyta því í næstu viku... svo fyrsta æfingin,, shit ég gat gjörsamlega ekki labbað eftir það! og daginn eftir var það ennþá verra, komst valla á klóið, verst var að setjast á klóið:S en svo er það búið að skána aðeins sem betur fer... þetta fer allt að koma;) 

Helgi kemur heim næstu helgi og ég er þá í helgarfríi.. vei.. síðan er ég ekki í helgafríi þegar hann er heima fyrr en í desember:| þar sem er EITT helgafrí hjá mér í nóvember gjösamlega GALTAÐ!!! þoli ekki svona vaktavinnu og vinna allar helvítis helgar!! En við förum í leikhús á laugardegi í nóv og þá á ég að vera að vinna en Rebekka sæta ætlar að vinna fyrir mig,, þannig er svona eiglega með 2 helgarfrí vei =)

Núna sit ég bara hérna heima í kósýheitum með kertaljós og svona, hlusta á vondaveðrið og hoppa af gleði að þurfa ekki vera að vinna úti;P

 Helgi var mjög fín, Bogga koma heim, alltaf jafn gaman þegar hun kemur heim.. föstudeginum vorum við bara að spila og fórum svo smá rúnt með svövu, svo á laug eftir vinnu fórum við á kaffihúsið ég, bogga, svava, rut og birna, og tókum svo rúnt eftir það. mjög gaman bara.. Svo kúrðum við Bogga hérna uppí hjá mer bara.. ægilega notó hjá okkur;)

 

Jæja... læt þetta duga, væri ekkert leiðinlegt ef einhver myndi nenna commenta hérna hjá mér:P Sé allavegana að það eru einhverjir sem skoða síðuna:P en annars er ég voðalega löt að setja eitthvað nytt  hérna. t.d eins og myndir og svoelðis:P En ég er með myspace síðu fyirr þá sem vita það ekki, það er www.myspace.com/nattkjoll 

 

Bleble

 The image “http://laurasv.blogia.com/upload/20060817072345-rain.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 19:35:19 / elva89

jaja

Jæja þá er helgi minn farinn aftur útá sjó:(:(:( Ótrúlega leiðinlegt þegar hann þarf að fara aftur!! En ég var í fríi allan tímann sem hann helgi var heima =) Við skelltum okkur í bæinn daginn sem hann kom heim seinasta fimt, gerðum mest lítið samt, bara eitthvað að skoða og solleis og fengum okkur dominos pizzu sem mér er búið að langa í svo leeeeeengi.. :haha:

Kíktum aðeins á djammið í gær sem var alveg ágætt en alls ekki margir úti, voum komin bara snemma heim..

Núna þarf ég sko að rasskella mig og skipta um gír um skólamálin min... ætla reyna að fara á fullt nuna og standa mig!! Þetta gengur ekki lengur hjá mér... borgaði 30.000kr fyir þetta og ætla mér að fá þetta endugreitt takk fyrir.. vona að mér takist þetta loksins.. sérstaklega með stærðfræðina .. úff það er bara hausverkur fyirr mig..

Í næsta mánuði verður viku frí hjá helga og þeim sem eru á sjónum.. veiiii hlakka svo til, það verður frábært! Svo erum við og öll áhöfnin hans helga að fara á Ladda sýnginunga í nóv lika, verður öruglega mjög gaman =)

Svo er ég að fara að byrja í Aðhaldsnámskeiði sem mér hlakkar rosalega til=) Fer í fitumælingu á mánudaginn.. það verður eitthvað skrautlegt þar sem ég er að kafna út fitu:haha::klikk:

 

Svo styttist og styttist bara í jólin8|  Sem er ÆÐÐÐIIIIII get ekki beðið,, er svona eigilega bara detta í jólafílingin.. gæti alveg sett jóladisk í græjurnar og farið að dansa á nærunum með fjarstýringu í hendinni og sungið og sungið! Elska jólin=) Þetta verða líka fyrstu jólin hjá mér og helga saman.. seinast stakk ég af til múttu;) En mun ekki gera það núna.. Það verur lika hevííí skrítið að vera ekki hjá mömmu.. halda jólin á öðrum stað sem er sennilega öðruvísi, en það er bara gaman að því, helgi á svo yndislega fjölskyldu =)

Jæja, ætla laga til og koma mér í sturtu og eitthvað...... Ekkert spennandi þetta kveld þar sem helgi minn er bara farinn.. æjiiii get endalaust vælt útaf þessu :p

Bleble..


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 12:25:34 / elva89

Ég hata windos VISTA

Ég þoli ekki þetta nýja windos vista ruglu drullu sull!! Ég er ny buin að kaupa mér tölvu, eða svona 2 mánuðir síðan og ég var svo ánágð að ég liggu við hoppaði af kæti.. og það er þetta windos vista í henni, þetta nyja voða flotta dót... En málið er bara að ég kemst aldrei inná netið!!!! Nema eitthvað tölvunörd fiktar í tölvunni... er alltaf í vandræðum í skólanum að fara inná neitð og þarf alltaf þá að fá lánaða tölvu sem ég þoli ekki því þær eru svo mikið drasl! Þurfti að vera með solleis allan seinasta vetur og var viða glöð nuna að hafa keypt mér tölvu þá þyrfti ég sko EKKI að fá þessar skolatölvur í láni.. en neeeei jú víst þarf ég þess:evil:

En þau í skólanum, eða tölvukallinn í skólanum segjir að ég þurfi nyjan ráder og eitthvað solleiðis,, en hvernig þá þegar það eru alveg 3 aðarar tölvur hér og þær komast allar ánetið... og ég veit um fl sem eru með vista og komast ekki ánetið. þannig ég kenni klárlega þessu vista bulli um þetta.. ohh ég verð svo pirruð að komast aldrei á netið í tlvunni minni!!!!!!!  

 

En jæja.. nó um þetta bull.. :P

Helgi minn kemur heim á fimt.. víí:D og ég er í fríi frá fimt til sun akkúrat þegar hann er heima.. jeij:D Förum kannski í bæinn og solleiðis.. =) Elska aðrhverja helgi þegar hann er heima =)

 

Seinasta helgi var ekkert til að hoppa húrra fyrir, var bara að vinna og læra eitthvað smá.. og tjilla með svövu og solleis og eydis var eitthvað hérna, hitti hana smá, rosa langt síðan maður sá hana.. .. svo var mummi hérna í hólminum, alltaf gaman að sjá hann =)

 

En jæja... þurfti að vakna hálf 9 til að fara í próf.. og ef svava hefði ekki hringt í mig þá hefði ég sofið yfir mig, því það er svo gott að sofa:haha:

 

Já ég læt þetta duga..bleble 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill